top of page

'Agnes'

Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)

Uppruni

Saunders, Kanada, fyrir 1902

ígulrós (Rosa rugosa) x gullrós (Rosa foetida) 'Persiana'

Hæð

um 1,5 m

Blómlitur

gulur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

daufur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þarf gott skjól, líklega RHF3

Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur.  Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.


Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum.  Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 3a

Skandínavíski kvarði: H6


Ígulrósarblendingur með fylltum, gulum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar.

"Nokkuð harðgerð rós í skjóli. Blómstrar snemma í júlí 1,5.m á hæð, ilmar mikið. H.3.Ísl."

 - Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009


Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page