top of page

'Blanc Double de Coubert'

Hvítibjörn

Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)

Uppruni

Cochet, Frakklandi, 1892

fræplanta af Rosa rugosa 'Alba'

Hæð

um 1,5 - 2 m

Blómlitur

hvítur

Blómgerð

hálffyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

sterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, RHF2

Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur.  Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.


Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum.  Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 3b

Skandínavíski kvarði: H7


Ígulrósarblendingur með hálffylltum, hvítum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar.

"Þetta er afar harðgerð rósa rugósa rós, sem hefur staðið sig vel í mörg ár. Er um 2 m á hæð. Blómstrar mikið í júli og ilmar mikið. H.1.Ísl."

 - Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009


Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page