top of page

'Dagmar Hastrup'

sh. 'Fru Dagmar Hastrup'

Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)

Uppruni

Hastrup, Danmörku, 1914

fundrós, óþekktur uppruni

Hæð

um 0,5 - 1,5 m

Blómlitur

bleikur

Blómgerð

einföld

Blómgun

síblómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

sterkur

Aldin

rauðar nýpur

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð, RHF1

Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur.  Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.


Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum.  Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 3b

Skandínavíski kvarði: H6


Ígulrósarblendingur af óþekktum uppruna með einföldum, bleikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ekki ætti að klippa hana mikið niður, en grisja má eldri greinar innan úr til að hún endurnýi sig og klippa má lítillega framan af öðrum greinum. Þroskar rauðar nýpur og fær gula haustliti.

"Harðgerð Ígulrós, blómstrar ilmandi blómum í júlí 1,5.m. á hæð. H.2.Ísl."

 - Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009


Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page