![]() |
---|
'Dr. Eckener'
sh. 'Docteur Eckener'
Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)
Uppruni
Vincenz Berger, Þýskalandi, 1928
terósarblendingurinn 'Golden Emblem' × ónefndur blendingur af ígulrós, Rosa rugosa
Hæð
1 m
Blómlitur
ferskjugulur - bleikur
Blómgerð
hálffyllt
Blómgun
lotublómstrandi, júlí - ágúst
Ilmur
sterkur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
frekar viðkvæm, þarf skjólgóðan, sólríkan vaxtarstað
Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur. Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.
Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum. Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 5b
Skandínavíski kvarði: H4
Ígulrósarblendingur með hálffylltum, ferskjugulum - bleikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar og kal. Kelur töluvert.
Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?
Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.