top of page

'F. J. Grootendorst'

sh. 'Grootendorst Red'

Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)

Uppruni

De Goey, Hollandi, 1918

Hæð

um 0,5 - 1 m

Blómlitur

rauðbleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

síblómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

enginn

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þarf gott skjól, RHF3

Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur.  Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.


Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum.  Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 6b

Skandínavíski kvarði: H7


Ígulrósarblendingur með fylltum, rauðbleikum blómum. Blómstrar á nýjar greinar, svo hún getur blómstrað þrátt fyrir mikið kal. Hún þarf þó sólríkan, skjólgóðan vaxtarstað til að blómstra vel. Þrífst best í vel framræstum jarðvegi.



Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page