top of page

'Jens Munk'

Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)

Uppruni

Svejda, Kanada, 1964

'Schneezwerg' x 'Dagmar Hastrup'

Hæð

1 - 1,5 m

Blómlitur

bleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

sterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, RHF2

Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur.  Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.


Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum.  Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 2b

Skandínavíski kvarði: H6


Ígulrósarblendingur með fylltum, bleikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar. Hún er sögð mjög harðgerð og heilbrigð.


Þetta er ein af þeim rósum sem tilheyra kanadísku Explorer-seríunni. Jens Munk var skandinavískur landkönnuður sem gerði tilraun til að finna siglingaleið norður yfir til Asíu.


Explorer-serían er afrakstur ræktunarverkefnis á vegum kanadíska landbúnaðarráðuneytisins sem miðaði að því að rækta fram harðgerðar, heilbrigðar rósir sem þola kanadískar frosthörkur. Dr. Felicitas Svejdas hafði umsjón með verkefninu og ræktaði hún fram fjölda harðgerðra rósa á árunum 1961-1999, sem margar hafa reynst afar vel hér á landi. 


"Harðgerð Kanadisk rós 1,2 m á hæð. H.2.Ísl. Blóm snemma í ágúst, mikill ilmur."

- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page