![]() |
---|
'Rotes Meer'
sh. 'Purple Pavement'
Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)
Uppruni
Baum, Þýskalandi, 1983
fræplanta af 'White Hedge'
Hæð
um 1,5 m
Blómlitur
purpurarauður
Blómgerð
hálffyllt
Blómgun
lotublómstrandi, júlí - september
Ilmur
sterkur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerð, RHF2
Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur. Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.
Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum. Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 3b
Skandínavíski kvarði: H7
Ígulrósarblendingur með hálffylltum, purpurarauðum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar.
"Harðgerð rós sem blómstrar frá miðjum júli og langt frameftir sumri,ilmar mikið og er um 1,5.m.á hæð H.2.Ísl"
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009