Rosa rugosa 'Rubra'
syn. Rosa rugosa var. rubra
Ígulrós
Ígulrósir
Uppruni
Vex villt í Japan og Kína.
Hæð
1 - 2 m
Blómlitur
dökkbleikur
Blómgerð
einföld
Blómgun
síblómstrandi, frá júlí fram á haust
Ilmur
sterkur
Aldin
rauðar nýpur
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, sendinn, rýr
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
mjög harðgerð, RHF1
Villirósir eru, eins og nafnið bendir til, villtar tegundir og sortir af þeim sem eru ekki mikið kynblandaðar. Það eru um 150 villtar tegundir rósa sem vaxa á norðurhveli jarðar og geta verið mjög breytilegar innan tegundar. Þessar rósir eru formæður allra garðrósa.
Ígulrósir eru lítið kynbætt afbrigði af ígulrós, Rosa rugosa.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 2
Mjög harðgerð runnarós með einföldum, dökkbleikum blómum. Blómstrar frá júlí fram á haust og þroskar dökkrauðar nýpur.
"Báðar þessar rósir (Rosa rugosa og Yndisrós) eru harðgerðar og blómsælar blómstra í júlí ,ilma mikið eru um 1,5.m á hæð H.1.Ísl."
-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009