top of page

'Rudolf'

Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)

Uppruni

óþekktur, finnsk fundrós

Hæð

um 1,5 m

Blómlitur

purpurarauður

Blómgerð

hálffyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - september

Ilmur

sterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

takmörkuð reynsla

Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur.  Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.


Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum.  Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

Finnski kvarði : IV

Ígulrósarblendingur með hálffylltum, purpurarauðum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar.

"Finnsk Ígulrós. Óreynd,blómstrar í júlí,ilmar mikið."

 - Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009


Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page