![]() |
---|
'Schneekoppe'
'Snow Pavement'
Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)
Uppruni
Karl Baum, Þýskalandi, 1984
Hæð
um 1,5 - 1,8 m
Blómlitur
föl lillableikur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
lotublómstrandi, júlí - september
Ilmur
sterkur
Aldin
rauðar nýpur
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
nokkuð harðgerð, RHF2
Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur. Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.
Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum. Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 3b
Skandinavíski kvarði: H7
Ígulrósarblendingur með fylltum, föl lillableikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar.
Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?
Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.