![]() |
---|
'Skotta'
Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)
Uppruni
Grasagarður Reykjavíkur, um 1965
Rosa blanda 'Betty Bland´ og líklega Rosa rugosa
Hæð
um 1,5 m
Blómlitur
bleikur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
lotublómstrandi, júlí - september
Ilmur
sterkur
Aldin
rauðar nýpur
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerð, líklega RHF1
Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur. Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.
Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum. Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
Ígulrósarblendingur með fylltum, bleikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar.
Þessi rós var ræktuð í Grasagarði Reykjavíkur af fræi frá grasagarðinum í Wageningen, Hollandi skv. upplýsingum á vef Yndisgróðurs. Plöntur ræktaðar af rósinni sem óx í Grasagarðinum fóru í dreifingu einhverntíma eftir 1980 og voru seldar undir heitinu 'Wasagaming', áður en ljóst var að um nýtt yrki væri að ræða.
Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?
Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.