'Topaz Jewel'
sh. 'Gelbe Dagmar Hastrup'; 'Yellow Dagmar Hastrup'
Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)
Uppruni
Ralph S. Moore, Bandaríkjunum, 1987
Hæð
um 1 m
Blómlitur
gulur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
lotublómstrandi, júlí - ágúst
Ilmur
sterkur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
frekar viðkvæm, líklega RHF3
Ígulrósir eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur. Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.
Eldri ígulrósablendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáar eftir þann tíma og eru þær oft flokkaðar með nútímarunnarósum. Ég flokka þær allar saman hér þar sem ígulrósablendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur. Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.
Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum. Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 4b
Ígulrósarblendingur með fylltum, gulum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar.
"Fallegasta gula rósin, sennilega viðkvæm en hefur vaxið án áfalla bráðum tvö ár og blómstrað tvö sumur. Blómstrar ilmandi blómum að áliðnum júlí. Hæð 1 m. H.3.ísl."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009