Rosa willmottiae
Álfarós
Villirósir
Uppruni
vex villt í Kína
Hæð
2 - 3 m
Blómlitur
bleikur
Blómgerð
einföld
Blómgun
einblómstrandi, byrjun júlí - ágúst
Ilmur
daufur
Aldin
rauðgular nýpur
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, rýr
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
nokkuð harðgerð, RHF2
Villirósir eru, eins og nafnið bendir til, villtar tegundir og sortir af þeim sem eru ekki mikið kynblandaðar. Það eru um 150 villtar tegundir rósa sem vaxa á norðurhveli jarðar og geta verið mjög breytilegar innan tegundar. Þessar rósir eru formæður allra garðrósa.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 5
Hávaxin, fíngerð runnarós með einföldum, bleikum blómum. Blómlitur getur verið breytilegur frá föl bleikum, jafnvel út í lillableikan út í dökk bleikan, nánast rauðbleikan.
"Álfarós, harðgerð, fingerð rós ættuð frá Kína. Verður hávaxin um 3 m. Blómstrar í byrjun júli, ilmur lítill. Hefur staðið sig vel í rósagarði Rósaklúbbsins fyrir ofan Hafnarfjörð. H.2.Ísl."
-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009