Rosa x richardii
sh. Rosa sancta, Holy Rose of Abyssinia, St. Johns Rose
Múmíurós
Villirósir
Uppruni
óþekktur, skráð um 1890, talin mjög forn tegund.
Hæð
0,5 - 1 m
Blómlitur
hvítur með fölbleikri slikju
Blómgerð
einföld
Blómgun
einblómstrandi, júlí - ágúst
Ilmur
meðalsterkur
Aldin
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
þokkalega harðgerð, RHF3
Villirósir eru, eins og nafnið bendir til, villtar tegundir og sortir af þeim sem eru ekki mikið kynblandaðar. Það eru um 150 villtar tegundir rósa sem vaxa á norðurhveli jarðar og geta verið mjög breytilegar innan tegundar. Þessar rósir eru formæður allra garðrósa.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 4b
Lágvaxin runnarós með einföldum hvítum blómum með fölbleikri slikju. Þarf frekar skjólgóðan, sólríkan stað. Mjög forn rós af óþekktum uppruna sem á sér merkilega sögu.