'Juhannusmorsian'
Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)
Origin
óþekktur, finnsk fundrós
Height
1 - 2 m
Flower color
fölbleikur
Flower arrangement
hálffyllt
Flowering
einblómstrandi, júní - ágúst
Fragrance
meðalsterkur
The age
-
Leaf color
grænn
Lighting conditions
sól
Soil
vel framræstur, sendinn
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
harðgerð, mögulega RHF1
Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm. Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm. Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.
Foreign hardness scales:
USDA zone: 2b
Skandínavíski kvarði: H6
Finnski kvarði: I-IV
Þyrnirósarblendingur með hálffylltum, fölbleikum blómum. Hún blómstrar á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Þrífst best í sól og sendnum, vel framræstum jarðvegi. Hún fær rauðleita haustliti og þroskar hnöttóttar, rauðbrúnar nýpur. Juhannusmorsian þýðir jónsmessubrúður á finnsku.
"Harðgerð Finnsk þyrnirós sem blómstrar frá mánaðamótum júní - júlí og er þakin blómum á þeim tíma. Er að nálgast 2 m á hæð og ilmar talsvert. H.1.Ísl".
-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009