'Poppius'
Páfarós
Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)
Origin
Stenberg, Svíþjóð, fyrir 1872
Fjallarós, Rosa pendulina x fræplanta af þyrnirós, Rosa pimpinellifolia
Height
1,5 - 2 m
Flower color
bleikur
Flower arrangement
hálffyllt
Flowering
einblómstrandi, júní - ágúst
Fragrance
daufur
The age
-
Leaf color
grænn
Lighting conditions
sól
Soil
vel framræstur, sendinn
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
harðgerð, HRF1
Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm. Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm. Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.
Foreign hardness scales:
USDA zone: 2b
Skandínavíski kvarði: H8
Þyrnirósarblendingur með hálffylltum, bleikum blómum. Hún blómstrar á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Þrífst best í sól og sendnum, vel framræstum jarðvegi. Harðgerð og blómsæl.
"Mjög harðgerð þyrnirós blómstrar mikið og lengi í júlí. Ilmar lítið. Er 2 m á hæð. Er illa við mikla vætu um blómgunartímann. H.1.Ísl."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009