'Robusta'
Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)
Origin
Kordes, Þýskalandi, 1979
ónefnd fræplanta x Rosa rugosa regeliana
Height
um 1,5 m
Flower color
rauður
Flower arrangement
einföld
Flowering
lotublómstrandi, júlí - september
Fragrance
frekar daufur
The age
-
Leaf color
grænn
Lighting conditions
sól
Soil
vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
takmörkuð reynsla, líklega RHF3
Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur. Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.
Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum. Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.
Foreign hardness scales:
USDA zone: 4b
Skandínavíski kvarði: H5
Ígulrósarblendingur með einföldum, rauðum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar.
"Nokkuð harðgerður rugósublendingur, þarf skjól. 1,5 m á hæð. H.3.Ísl. Blómstrar í júlí, ilmar mikið."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009