'Aloha'
Nútíma runnarósir (Modern Shrub)
Origin
Eugene S. Boerner, Bandaríkin, 1949
'Mercedes Gallart' (terósarblendingur) x 'New Dawn'
Height
60 cm
Flower color
bleikur með ferskjubleikum tónum í miðju
Flower arrangement
fyllt
Flowering
síblómstrandi, júlí - september
Fragrance
sterkur
The age
-
Leaf color
grænn
Lighting conditions
sól
Soil
frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
frekar viðkvæm
Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir. Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður. Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér. Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.
Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir. Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning. Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.
Foreign hardness scales:
USDA zone: 5b
Skandinavíski kvarði: H3
Nútíma runnarós með stórum blómum sem líkjast blómum terósablendinga. Þau eru bleik með ferskulitum tónum í mðjunni. Hún er flokkuð sem nútíma klifurrós, en verður nú ekki mjög hávaxin utandyra hér á landi. Frekar viðkvæm rós sem þarf besta stað í garðinum og vetrarskýli, en nýtur sín best í gróðurhúsi.