![]() |
|---|
'Celestial'
sh. 'Céleste'
Bjarmarósir (Alba)
Uppruni
óþekktur, Holland um 1739
blendingur af Rosa alba
Hæð
um 60 - 150 cm
Blómlitur
bleikur
Blómgerð
hálffyllt
Blómgun
einblómstrandi, júlí - ágúst
Ilmur
sterkur
Aldin
-
Lauflitur
grágrænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
frjór, lífefnaríkur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
nokkuð harðgerð, RHF2
Bjarmarósir eru afkomendur bjarmarósar, Rosa alba. Flestar með mikið fyllt blóm, bleikar eða hvítar með grágrænu laufi og mjög sterkum ilmi. Þær voru mikið ræktaðar á 19. öld. Bjarmarósir þrífast vel hérlendis í góðu skjóli. Þær þola skugga part úr degi.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 5b
Skandínavíski kvarði: H6
Bjarmarós með hálffylltum, bleikum blómum. Eins og flestar aðrar antíkrósir blómstrar hún á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Kelur ekki mikið í góðu skjóli. Blómgun nokkuð örugg.
"Harðgerð Bjarmarós. Sj ö ára gömul rós, hún átti erfitt uppdráttar fyrstu tvö árin en síðan hefur hún vaxið áfallalaust og er 1,5.m.á hæð. Blómstrar um mánaðamót júlí - ágúst, ilmar mikið. H.2.Ísl."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

