top of page

'Fritz Nobis'

Nútíma runnarósir (Modern Shrub)

Uppruni

Wilhem J. H. Kordes II, Þýskalandi, 1940

'Joanna Hill' (terósablendingur) x 'Magnifica' (eplarósarblendingur)

Hæð

150 cm

Blómlitur

bleikur með ferskjulitum tónum í miðjunni

Blómgerð

fyllt

Blómgun

einblómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

daufur

Aldin

-

Lauflitur

ljósgrænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þrífst vel við rétt skilyrði

Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir.  Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður.  Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér.  Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.


Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir.   Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning.  Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 6b

Skandinavíski kvarði: H5

Nútíma runnarós með fylltum, bleikum blómum.  Hún þarf sólríkan vaxtarstað í góðu skjóli og helst vetrarskýli, því kal kemur niður á blómgun. 

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page