top of page

'Quadra'

Nútíma runnarósir (Modern Shrub)

Uppruni

Dr. Felicitas Svejda, 1981

B08 (Svejda) x 'Félix Leclerc' (nútíma runnarós, kanadíska Artist serían)

Hæð

1,8 m

Blómlitur

rauður

Blómgerð

fyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - september

Ilmur

daufur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

takmörkuð reynsla

Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir.  Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður.  Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér.  Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.


Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir.   Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning.  Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 3b

Skandínavíski kvarði: H5

Nútíma runnarós úr kanadísku Explorer-seríunni, ræktuð af Dr. Felicitas Svejda og Dr. Ian S. Ogilvie. Hún blómstrar fylltum, bleikum blómum með gulu skini.


Juan Francisco de la Bodega y Quadra var spænskur landkönnuður sem fór könnunarleiðangra norður eftir NV-strönd N-Ameríku alveg norður til Alaska.

"Harðgerð kanadisk rós sem blómstrar í júlí og blómin standa lengi,litill ilmur. Hæð um 1 m. H.2.Ísl.

   - Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page