top of page

'Andrewsii'

Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)

Uppruni

óþekktur, fyrir 1806

Hæð

0,5 - 1 m

Blómlitur

rósbleikur

Blómgerð

hálffyllt

Blómgun

einblómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

daufur

Aldin

svartar nýpur

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

sendinn, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

takmörkuð reynsla

Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm.  Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm.  Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone:  6b

Lágvaxinn þyrnirósarblendingur með hálffylltum, rósbleikum blómum. Til er önnur rós sem heitir 'Andrewsii', sú er centifolia mosarós (Centifolia Moss).

"Óreynd skosk þyrnirós. Lítill ilmur, blóm í júlí."

-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009



Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page