top of page

'Mon Amie Claire'

Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)

Uppruni

Louette, Belgíu, 2005

'Stanwell Perpetual' x þyrnirós (Rosa pimpinellifolia)

Hæð

um 1 m

Blómlitur

fölbleikur

Blómgerð

hálffyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

sterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, sendinn

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

takmörkuð reynsla

Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm.  Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm.  Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

Þyrnirósarblendingur með mikið ilmandi,  hálffylltum, fölbleikum blómum.  Þrífst best í sól og sendnum, vel framræstum jarðvegi. 

Skv. upplýsingum á www.helpmefind.com eru 'Mon Amie Claire' og 'Paula Vapelle' systur fræplöntur. Frjógjafinn var dvergvaxið villt form af þyrnirós sem var upprunnin á Quiberon skaga í Bretaníu.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page