![](https://static.wixstatic.com/media/a27d24_442262539c2445b1bfc5c4eca0bbcb32~mv2_d_1920_1280_s_2.jpg/v1/fill/w_147,h_98,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,blur_2,enc_auto/a27d24_442262539c2445b1bfc5c4eca0bbcb32~mv2_d_1920_1280_s_2.jpg)
Purpurasandi er falleg steinhæðaplanta sem þarf mjög sólríkan stað og malarblandaðan jarðveg. Laufið minnir á lambagras, en blómin eru mun stærri, stjörnulaga og lillableik. Hann hefur verið svolítið tregur að blómstra, svo það er ekki alveg árlegur glaðningur að sjá hann í blóma.
https://www.gardaflora.is/arenaria-purpurascens