![](https://static.wixstatic.com/media/a27d24_e402c8695ba5484889d409cc81e4fc3f~mv2_d_1664_2496_s_2.jpg/v1/fill/w_147,h_221,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,blur_2,enc_auto/a27d24_e402c8695ba5484889d409cc81e4fc3f~mv2_d_1664_2496_s_2.jpg)
'Sooty' er sort af stúdentadrottningu með sótrauðum blómum og rauðmenguðu laufi. Hún hefur yfirleitt blómstrað 2-3 ár áður en hún hverfur, svo það þarf að sá til hennar á nokkurra ára fresti. Fræið keypti ég upphaflega hjá Thompson & Morgan, en hún þroskar fræ sem gefur eins plöntur svo hægt er að halda henni við með því að safna fræi.
Þessi er algjör fegurðardís.