![](https://static.wixstatic.com/media/a27d24_18b359dd1d9d4270adab31498b57ceb0~mv2_d_1664_2496_s_2.jpg/v1/fill/w_147,h_221,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,blur_2,enc_auto/a27d24_18b359dd1d9d4270adab31498b57ceb0~mv2_d_1664_2496_s_2.jpg)
'Pam's Choice' er fallegt yrki af fingurbargblómi með hreinhvítum blómum sem hafa vínrauðar dröfnur í blómgininu sem renna saman í stóran flekk í miðunni.
Það er því miður ekki fræekta. Þær sjálfsáðu plöntur sem komu upp hjá mér voru með minni dröfnur sem runnu ekki svona saman í stóra flekki, en voru þó í sama fallega vínrauða litnum.