![](https://static.wixstatic.com/media/a27d24_fbfe9c0c674844a0816cacfdb2dfef6f~mv2_d_1600_1200_s_2.jpg/v1/fill/w_147,h_110,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,blur_2,enc_auto/a27d24_fbfe9c0c674844a0816cacfdb2dfef6f~mv2_d_1600_1200_s_2.jpg)
'Nove Cento' er asíublendingur með skærgulum blómum með appelsínugulum blettum í miðjunni. Hún varð ekki langlíf hjá mér, en það gæti hafa verið staðarvali um að kenna því hún var ekki eina liljan sem ég plantaði á þessum stað sem lifði ekki. Þær fengu bara morgunsól þar, sem var greinilega ekki það sem þær þurftu til að þrífast vel.