Biskupsbrá
![](https://static.wixstatic.com/media/a27d24_4169bf127397479c8bbdc046122ec3d3~mv2.jpeg/v1/fill/w_147,h_98,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,blur_2,enc_auto/a27d24_4169bf127397479c8bbdc046122ec3d3~mv2.jpeg)
Biskupsbrá er hávaxin planta sem þarf stuðning, annars leggjast blómstönglarnir niður. Hún blómstrar frá mánaðarmótum júní-júlí og fram í ágúst. Blómkörfurnar eru með gulum pípukrónum í miðju umkringdum hvítum, bleikum eða rauðum tungukrónum. Hún þarf frekar sólríkan stað og vel framræstan jarðveg. Nokkuð harðgerð.