Hörpulauf
![](https://static.wixstatic.com/media/a27d24_2dfb83f0b6f942119aa767b74f278163~mv2.jpg/v1/fill/w_147,h_98,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,blur_2,enc_auto/a27d24_2dfb83f0b6f942119aa767b74f278163~mv2.jpg)
Hörpulauf er harðgerð og kröftug þekjuplanta með sígrænu laufi. Hún gefur því góða þekju allt árið. Hún blómstrar bláfjólubláum blómum í maí og fram í júní, og svo lítillega fram eftir sumri. Hún getur vaxið í sól eða hálfskugga og er töluvert skuggþolin. Hún gerir engar sérstakar jarðvegskröfur, en þrífst þó best í lífefnaríkum, vel framræstum jarðvegi.