Gallica rós
![](https://static.wixstatic.com/media/a27d24_bd2b11e6d8e9428ba0855744b56f63b6~mv2.jpg/v1/fill/w_147,h_110,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,blur_2,enc_auto/a27d24_bd2b11e6d8e9428ba0855744b56f63b6~mv2.jpg)
'Ruustinna' er finnsk fundrós sem fannst í Khumo 1998. Hún hét áður 'Sanna', en nafninu hefur verið breytt í 'Ruustinna' og hún er nú seld undir því nafni í Finnlandi. Þetta er nokkuð stórgerð rós sem getur orðið 1,5 - 2 m á hæð. Hún blómstrar rósbleikum, fylltum blómum, sem ilma nokkuð sterkt í fyrstu, en ilmurinn er fljótur að dofna. Ég þekki ekki þessa rós af eigin reynslu, en Kristleifur heitinn Guðbjörnsson skrifaði 2009:
"Harðgerð finnsk rós, blómstrar í júlí ilmandi blómum. 1,5.m á hæð. H.2. Ísl."