Lundahæra
![](https://static.wixstatic.com/media/a27d24_efc87496cd80451eaf995b2d654f5161~mv2.jpg/v1/fill/w_147,h_110,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,blur_2,enc_auto/a27d24_efc87496cd80451eaf995b2d654f5161~mv2.jpg)
'Solar Flare' er lágvaxið afbrigði af lundahæru með gulgrænu laufi. Það blómstrar brúnum blómum snemmsumars. Ég ræktaði það af fræi og plantaði fyrstu plöntunni út í beð haustið 2019. Sú planta kom mjög vel undan vetri og óx vel í sumar. Lundahæra þolir vel að vaxa í skugga part úr degi og vex best í rökum, vel framræstum jarðvegi.