top of page

Fjölærar plöntur

Public·1 member

Ligularia przewalskii - Turnskjöldur



Turnskjöldur er hávaxin planta sem vex villt í raklendi í N-Kína og Mongólíu. Hann vex þó alveg í venjulegri garðmold. Flestir skildir (Ligularia) eru með óskipt laufblöð sem eru oft mjög stór, en laufið á turnskildi er fínskipt sem gefur honum mun fínlegra yfirbragð. Blómstönglarnir eru næstum svartir sem er flott andstæða við gul blómin. Hann verður vel yfir meter á hæð en stendur alveg óstuddur. Hann vex í sól eða hálfskugga. Harðgerð og auðræktuð planta.

85 Views

About

Myndir og upplýsingar um reynslu af ræktun fjölærra plantna

Garðaflóra slf.
kt: 550421-1430

vsk. nr.: 140886
Suðurgötu 70, 220 Hafnarfirði

S: 780-8875

gardaflora@gardaflora.is

Opnunartími:
 

Eingöngu vefverslun

Afhending sóttra pantana

eftir samkomulagi

Opnunartími garðplöntusölunnar birtist hér á síðunni og á Facebook síðu Garðaflóru

  • Facebook App Icon
  • Instagram
  • bluesky-seeklogo
bottom of page