Rodgersia podophylla - Bronslauf

Bronslauf er meðalhá planta með stórgerður laufi sem verður mjög mikil um sig. Hún er helst ræktuð vegna blaðfegurðar, en laufið er bronslitað, dekkra þegar það er ungt, en heldur litnum ágætlega þegar laufið eldist fái það næga birtu. Það verður grænt í miklum skugga. Það hefur aldrei blómstrað hjá mér, en blómin eru kremhvít, svipuð og á kastaníulaufinu. Harðgerð og auðræktuð planta sem vex best í næringarríkum, frekar rökum jarðvegi.
265 Views


Elska þessi lauf !