Heuchera americana 'Metallica'
Vínlandsroði

Fræsort af vínlandsroða með vínrauðu laufi sem er með smá silfraðri slikju og dekkra æðaneti. Blómin geta verið bleik eða hvít, en engin af plöntunum mínum hefur enn blómstrað. Ég sáði fræinu í nóvember 2018 og plantaði einni plöntu út í fyrra sumar. Hinar hafði ég inni í gróðurhúsinu mínu í vetur. Það kemur í ljós í vor hvort plantan úti lifði veturinn af.
16 Views
Allar plönturnar sem voru inni í gróðurhúsi. Þær eru mismunandi, en allar fallegar. Þessi úti í beði kemur ljómandi vel undan vetri.