top of page

Rósir

Public·1 member

Rosa 'Tuscany Superb'

Gallica rós



'Tuscany Superb' er ein af tveimur gallica rósum sem ég átti í gamla garðinum mínum, hin heitir 'Hippolyte'. Ég flutti báðar með mér og báðar lifa enn, en 'Tuscany Superb' hefur alltaf verið gróskumeiri og viljugri til að blómstra. Gallica rósir blómstra á gamlar greinar og því verður blómgun engin ef þær kelur mikið. 'Tuscany Superb' kelur yfirleitt eitthvað, en ekki það mikið að hún nái ekki að blómstra. Hún blómstraði meira að segja eitthvert rigningasumarið eftir að við fluttum, kannski 2014, þegar fáar rósir blómstruðu. Blómin eru þeim kosti gædd að þola vel rigningu.


Ég pantaði gallica rósina 'Merveille' frá Garðyrkjufélaginu í fyrra og hún blómstraði í fyrsta sinn í sumar. Það á eftir að koma í ljós hvernig hún reynist og hvort hún sé jafnvel enn harðgerðari en þessi.

21 View
Rannveig
Rannveig
09 jun


About

Myndir og upplýsingar um reynslu af rósarækt á Íslandi

Garðaflóra slf.
kt: 550421-1430

vsk. nr.: 140886
Suðurgötu 70, 220 Hafnarfirði

S: 780-8875

gardaflora@gardaflora.is

Opnunartími:
 

Eingöngu vefverslun

Afhending sóttra pantana

eftir samkomulagi

Opnunartími garðplöntusölunnar birtist hér á síðunni og á Facebook síðu Garðaflóru

  • Facebook App Icon
  • Instagram
  • bluesky-seeklogo
bottom of page