top of page

Rósir

Public·1 member

Rosa x sp. 'Yndisrós'



ree

Yndisrós er upprunnin í Grasagarði Reykjavíkur. Þetta var fræplanta ræktuð af óþekktu fræi. Hún var upphaflega skráð undir tegundaheitið Rosa hypoleuca, en sú rós stemmir ekki við útlitið á Yndisrósinni. Þessi rós er á meðmælalista Yndisgróðurs yfir harðgerðar plöntur fyrir íslenska garða. Samkvæmt upplýsingum á vef Yndisgróðurs er þetta harðgerð rós, sem er harðgerð á vaxtarsvæði A og er metin RHF2 af rósaklúbbi Garðyrkjufélags Íslands. Hún setur mikið af rótarskotum og kelur yfirleitt eitthvað, svo það þarf að snyrta hana nokkuð á vorin. Ég hef ekki persónulega reynslu af þessari rós enn, en ég keypti plöntu í fyrra haust sem á vonandi eftir að vaxa vel og blómstra á næstu árum.


Kristleifur Guðbjörnsson skrifaði 2009:

"Mjög harðgerð rós af óþekktum uppruna. Sprettur mikið og blómstrar mikið á hverju sumri en þarf talverða snyrtingu á hverju vori. Hæð að hausti um 2.m en þarf að klippast niður í 1.5 m að vori. H.1.Ísl."
21 View

Garðaflóra slf.
kt: 550421-1430

vsk. nr.: 140886
Suðurgötu 70, 220 Hafnarfirði

S: 780-8875

gardaflora@gardaflora.is

Opnunartími:
 

Eingöngu vefverslun

Afhending sóttra pantana

eftir samkomulagi

Opnunartími garðplöntusölunnar birtist hér á síðunni og á Facebook síðu Garðaflóru

  • Facebook App Icon
  • Instagram
  • bluesky-seeklogo
bottom of page