top of page

Abies lasiocarpa

Fjallaþinur

Þallarætt

Pinaceae

Hæð

um 6 - 15 m

Blómlitur

kk - gulbrúnn, kvk - dökkfjólublár

Blómgun

maí - júní

Blómgerð

berfrævingur

Aldin

könglar

Lauflitur

blágrænn

Birtuskilyrði

sól - skuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frjór, sendinn

pH

súrt

Harðgerði

þarf frekar skjólgóðan stað, þrífst þá vel

Heimkynni

vestanverð N-Ameríka

Ættkvíslin Abies tilheyrir þallarætt, Pinaceae. Þetta eru stórvaxin tré, með heimkynni í fjalllendi  víða á norðurhveli jarðar. Helsta einkenni ættkvíslarinnar er mjúkt barr sem vísar upp frá greinunum. Þinir eru skuggþolnir og nægjusamir. Flestar tegundir vaxa á stöðum þar sem meginlandsloftslag er ríkjandi og því geta vetrarumhleypingar valdið skemmdum á nýjum sprotum.

Fjölgun:


Sáning - þarf kaldörvun, best sáð um miðjan nóvember


Fræ lagt í bleyti í 24 klst og síðan blandað rökum vikri og geymt í rennilásapoka í ísskáp í 6-8 vikur. Að þeim tíma loknum er fræinu sáð í sáningarbox, hulið með þunnu lagi af vikri og haft við stofuhita fram að spírun. 

Fjallaþinur er sígrænt tré sem getur orðið 6 - 15 m á hæð hér á landi, en hægt er að stýra vextinum með klippingu. Barrið er stutt, mjúkt, blágrænt á lit og uppsveigt eins og á öðrum þintegundum.  Hann þrífst best á skjólgóðum stað og getur kalið ef það næðir of mikið um hann.  Hann þolir nokkurn skugga og vex best í frekar súrum, vel framræstum, frjóum jarðvegi. 

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page