top of page

Abies sibirica

Síberíuþinur

Þallarætt

Pinaceae

Height

um 10 - 15 m

Flower color

kk - gulbrúnn, kvk - bláleitur

Flowering

-

Flower arrangement

könglar

The age

könglar

Leaf color

dökkgrænn

Lighting conditions

sól - hálfskuggi

Soil

vel framræstur, frjór, frekar rakur

pH

súrt - hlutlaust

Toughness

þarf frekar skjólgóðan stað, þrífst þá vel

Homecoming

Síbería, Mongólía, Kasakstan og N-Kína

Ættkvíslin Abies tilheyrir þallarætt, Pinaceae. Þetta eru stórvaxin tré, með heimkynni í fjalllendi  víða á norðurhveli jarðar. Helsta einkenni ættkvíslarinnar er mjúkt barr sem vísar upp frá greinunum. Þinir eru skuggþolnir og nægjusamir. Flestar tegundir vaxa á stöðum þar sem meginlandsloftslag er ríkjandi og því geta vetrarumhleypingar valdið skemmdum á nýjum sprotum.

Fjölgun:


Sáning - þarf kaldörvun, best sáð um miðjan nóvember


Fræ lagt í bleyti í 24 klst og síðan blandað rökum vikri og geymt í rennilásapoka í ísskáp í 6-8 vikur. Að þeim tíma loknum er fræinu sáð í sáningarbox, hulið með þunnu lagi af vikri og haft við stofuhita fram að spírun. 

Síberíuþinur er sígrænt tré sem getur orðið 10 - 15 m á hæð hér á landi, en hægt er að stýra vextinum með klippingu. Barrið er ljósgrænt á nývexti en verður svo fagurgrænt. Hann þrífst best á skjólgóðum stað og getur kalið ef það næðir of mikið um hann.  Hann þolir nokkurn skugga og vex best í aðeins súrum, vel framræstum, en þó hæfilega rökum, frjóum jarðvegi. Toppsprotarnir eru mjög langir, a.m.k. á ungum trjám. Það getur orðið fyrir skemmdum í vorhretum.

Do you have a photo or experience with this plant?

You can share photos and experiences here.

bottom of page