top of page

Acer platanoides 'Royal Red'

Broddhlynur

Hlynsætt

Aceraceae

Height

um 6-8 m

Flower color

gulur

Flowering

fyrir laufgun á vorin

Flower arrangement

The age

vængjaðar hnotur

Leaf color

purpurarauður

Lighting conditions

sól - hálfskuggi

Soil

vel framræstur, frekar rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Toughness

þarf mjög gott skjól

Homecoming

garðayrki

Ættkvíslin Acer, hlynir, er stór ættkvísl tæplega 130 tegunda  sem tilheyrðu áður hlynsætt, Aceraceae en eru nú flokkaðir í sápuberjaætt, Sapindaceae, Ættkvíslin er útbreiddust í Asíu en finnst einnig víðar á norðurhveli jarðar. Eitt einkenni ættkvíslarinnar eru vængjuð fræ sem standa tvö og tvö saman  og flestar tegundir hafa handflipótt eða handsepótt lauf. Ættkvíslin er þekkt fyrir mikla haustlitadýrð.

Fjölgun:


Ágræðsla


'Royal Red' er yrki af broddhlyn með dökk purpurarautt-rauðbrúnt lauf. Samkvæmt upplýsingum á vef Lystigarðs Akureyrar er þetta harðgerðasta rauðblaðayrki af broddhlyn sem hefur verið reynt hér á landi.  Laufið er rautt við laufgun og fær svo dökk purpurarauðan eða rauðbrúnan lit. Haustlitirnir eru bronslitaðir. Þarf skjólgóðan stað í sól eða hálfskugga í vel framræstum, frekar rökum jarðvegi.

Do you have a photo or experience with this plant?

You can share photos and experiences here.

bottom of page