top of page

Berberis thunbergii

Sólbroddur

Mítursætt

Berberidaceae

Hæð

1 - 1,5 m

Blómlitur

gulur

Blómgun

júní

Blómgerð

-

Aldin

rauð, ef þau þroskast

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frjór

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þokkalega harðgerður

Heimkynni

Japan

Ættkvíslin Berberis, broddar, er stór ættkvísl hátt í 200 tegunda í mítursætt, Berberidaceae, með útbreiðslu um tempruð og heittempruð belti jarðar. Mestur tegundafjöldi er í S-Ameríku, Afríku og Asíu. Þetta eru lauffellandi eða sígrænir, þyrnóttir runnar sem bera lítil gul eða appelsínugul blóm.

Fjölgun:


Sumargræðlingar.


Sáning: sáð að hausti eða vetri. 


Fræi best sáð að hausti - fræ hulið og haft úti á skýldum stað fram að spírun. Fræ spírar við 12-18°C.


eða


Fræi blandað í rakan vikur og geymt í plastpoka í ísskáp í 8 vikur áður en því er sáð og haft í gróðurhúsi fram að spírun.


Sólbroddur er mjög þyrnóttur runni sem verður um 1-1,5 m á hæð. Hann blómstrar gulum blómum í júní og fær rauða haustliti. Þrífst vel í sól eða hálfskugga. Þokkalega harðgerður, en kelur yfirleitt eitthvað.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page