top of page

Berberis x bidentata 'Mystery Fire'

Berberis x lologensis 'Mystery Fire'

Logabroddur

Mítursætt

Berberidaceae

Hæð

1 - 2 m

Blómlitur

appelsínugulur

Blómgun

maí - júní

Blómgerð

-

Aldin

blá, ef þau þroskast

Lauflitur

dökkgrænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frjór

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

frekar viðkvæmur, þarf gott skjól

Heimkynni

garðaafbrigði

Ættkvíslin Berberis, broddar, er stór ættkvísl hátt í 200 tegunda í mítursætt, Berberidaceae, með útbreiðslu um tempruð og heittempruð belti jarðar. Mestur tegundafjöldi er í S-Ameríku, Afríku og Asíu. Þetta eru lauffellandi eða sígrænir, þyrnóttir runnar sem bera lítil gul eða appelsínugul blóm.

Fjölgun:


Sumargræðlingar

'Mystery Fire' er afbrigði af logabroddi með dökkgrænu, sígrænu laufi sem minnir á kristþyrni (Ilex).  Blómin eru appelsínugul og ef hann þroskar ber, eru þau blá. Hann þarf frekar sólríkan vaxtarstað og gott skjól. Frekar viðkvæmur.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page