Berberis x ottawensis f. purpurea
Sunnubroddur
Mítursætt
Berberidaceae
Hæð
1 - 2 m
Blómlitur
gulur
Blómgun
júní
Blómgerð
-
Aldin
rauð, ef þau þroskast
Lauflitur
dökk purpurarauður
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
vel framræstur, frjór
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
þrífst vel í þokkalega góðu skjóli
Heimkynni
blendingur sólbrodds (Berberis thunbergii) og ryðbrodds (Berberis vulgaris)
Ættkvíslin Berberis, broddar, er stór ættkvísl hátt í 200 tegunda í mítursætt, Berberidaceae, með útbreiðslu um tempruð og heittempruð belti jarðar. Mestur tegundafjöldi er í S-Ameríku, Afríku og Asíu. Þetta eru lauffellandi eða sígrænir, þyrnóttir runnar sem bera lítil gul eða appelsínugul blóm.
Fjölgun:
Sumargræðlingar
Afbrigði af sunnubroddi með dökk purpurarauðu laufi. Hann blómstrar gulum blómum í júní. Þrífst vel við rétt skilyrði, frekar sólríkum vaxtarstað og góðu skjóli.