top of page

Chamaecyparis lawsoniana 'Alumigold'

Fagursýprus

Grátviðarætt

Cupressaceae

Hæð

allt að 15 m, lægri hér

Blómlitur

-

Blómgun

-

Blómgerð

könglar

Aldin

könglar

Lauflitur

gulgrænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frjór, rakur

pH

súrt - hlutlaust

Harðgerði

þarf skjólgóðan stað

Heimkynni

garðayrki

Ættkvíslin Chamaecyparis tilheyrir grátviðarætt, Cupressaceae. Ættkvíslin telur sjö tegundir með heimkynni í austur Asíu og vestanverðri N-Ameríku. Tegundir ættkvíslarinnar vaxa í skuggsælum strandskógum þar sem úrkoma er mikil. Þær þurfa því gott skjól og jafnan jarðraka.

Fjölgun:


Græðlingar síðsumars

Yrki af fagursýprus með gulgrænu barri. Hann þarf skjólgóðan stað í sól eða hálfskugga í frjóum, rökum, vel framræstum, veik súrum jarðvegi.  Mikilvægt er að verja hann fyrir morgunsól á vorin, hann getur sólbrunnið illa í frosti.  Ef hann nær að vaxa áfallalaust er hann keilulaga í vexti.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page