top of page

Cornus sanguinea 'Winter Beauty'

Dreyrahyrnir

Skollabersætt

Cornaceae

Hæð

um 1 m

Blómlitur

hvítur

Blómgun

júní

Blómgerð

-

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, frjór, lífefnaríkur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

frekar viðkvæmur

Heimkynni

garðaafbrigði

Ættkvíslin Cornus, hyrnar, er ættkvísl um 30-60 tegundir í skollabersætt, Cornaceae með útbreiðslu um nyrðra tempraða beltið. Þær tegundir sem vaxa hér bera lítil hvít blóm í klösum en suðlægari tegundir blómstra margar stórum hvítum blómum sem setja mikinn svip á umhverfið á vorin.

Fjölgun:


Sumargræðlingar


'Winter Beauty' er afbrigði af dreyrahyrni með litríkum greinum sem mikil prýði er af yfir vetrarmánuðina. Þær eru ljósgular neðst og roðna eftir því sem ofar dregur. Er frekar viðkvæmt og þarf sólríkan og skjólgóðan vaxtarstað. Fær gula og rauða haustliti ef hann nær að skipta lit áður en laufið frýs.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page