top of page

Elaeagnus commutata 'Skíma'

Silfurblað

Silfurblaðsætt

Elaeagnaceae

Hæð

1 - 1,5 m

Blómlitur

gulur

Blómgun

júní - júlí

Blómgerð

Aldin

-

Lauflitur

grágrænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, sendinn

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgert

Heimkynni

N-Ameríka

Elaeagnus, silfurblað, er ættkvísl rúmlega 50 tegunda í silfurblaðsætt, Elaeagnaceae sem allar eiga heimkynni í Asíu, utan ein, silfurblað, sem er upprunnin í vestanverðri N-Ameríku. Einkenni ættkvíslarinnar eru silfurlituð laufblöð. Blómin eru mjög smá, án krónublaða og oft ilmandi. Margar tegundir ættkvíslarinnar eru í sambýli með niturbindandi gerlum og get því vaxið í rýrum jarðvegi.

Fjölgun:


Græðlingar - vetrar eða sumargræðlingar

Sveiggræðsla


Sáning - best sáð að hausti.

Fræið lagt í bleyti í volgu vatni í a.m.k. 6 klst. og síðan rétt hulið með vikri.

Ef sáð er að hausti er best að láta sáningarboxin standa úti fram á vor. Spírar við stofuhita.

Ef fræ er ekki ferskt þegar því er sáð þarf það kaldörvun í 3 mánuði. 

Silfurblað í fíngerður runni sem getur náð 1 - 1,5 m hæð með silfruðu laufi. Blómin eru mjög smá, gul og ekki áberandi. Þrífst best í sól eða hálfskugga í vel framræstur, sendnum jarðvegi.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page