top of page

Malus 'Red Silver'

Skrautepli

Rósaætt

Rosaceae

Hæð

um 9 m erlendis, lægri hér

Blómlitur

bleikur

Blómgun

júní

Blómgerð

-

Aldin

rauð, ef þau þroskast

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, frjór

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þarf skjólgóðan vaxtarstað

Heimkynni

garðaafbrigði

Epli, Malus, er ættkvísl um 30-50 tegunda í rósaætt, Rosaceae, með útbreiðslu víða um tempraða beltið á norðurhveli. Matarepli, Malus pumila, tilheyra ættkvíslinni, aðrar tegundir eru ræktaðar til skrauts. Eplategundir eru ekki sjálffrjóvgandi, sem þýðir að til að aldin þroskist þarf a.m.k. tvær plöntur.

Fjölgun:


Ágræðsla




'Red Silver' er yrki af skrautlepli sem blómstrar bleikum blómum í júní. Það fær gyllta og rauða haustliti. Aldinin eru smá epli á stærð við sólber, sem eru rauð á lit, ef þau ná að þroskast. Takmörkuð reynsla hér.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page