top of page

Pinus aristata

Broddfura

Þallarætt

Pinaceae

Hæð

allt að 5 - 10 m

Blómlitur

kk appelsínugulur, kvk purpurarauður

Blómgun

maí - júní

Blómgerð

reklar

Aldin

könglar

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð

Heimkynni

Klettafjöll N-Ameríku

Ættkvíslin Pinus, fura, er stór ættkvísl í þallarætt, Pinaceae, sem telur rúmlega 100 tegundir. Heimkynni þeirra eru dreifð um norðurhvel jarðar. Einkenni ættkvíslarinnar eru langar nálar sem vaxa í knippum, oftast 2-5 nálar í knippi.

Fjölgun:


Sáning, sáð síðvetrar

Fræ lagt í bleyti í sólarhring og svo sáð í sáðbox og fræ rétt hulið fínum vikri eða sáðmold. Haft við stofuhita fram að spírun.

Broddfura er hægvaxta furutegund sem getur náð allt að 15 m hæð, en er oftar lægri og jafnvel runnkennd í vexti. Barrnálarnar eru dökkgrænar, um fimm saman í knippi með hvítum kvoðuútfellingum, sem eru einkennandi fyrir tegundina. Hún þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page