top of page

Sorbus cashmiriana

Kasmírreynir

Rósaætt

Rosaceae

Hæð

4 - 6 m

Blómlitur

fölbleikur

Blómgun

júní

Blómgerð

-

Aldin

hvít ber

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frjór

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

Himalaja, Kasmír

Ættkvíslin Sorbus, reyniviðir, er stór ættkvísl um 100-200 tegunda í rósaætt, Rosaceae með heimkynni á norðurhveli. Ein tegund, reyniviður, er innlend. Sumir grasafræðingar vilja skipta ættkvíslinni upp í fjórar ættkvíslir eftir lögun laufblaða og aldingerð. Eru þá tegundir með fjaðrað  lauf áfram í Sorbus en tegundir með heil lauf í ættkvíslinni Aria. Verður þeirri skiptingu ekki fylgt hér.

Fjölgun:


Sumargræðlingar


Sáning - best sáð að hausti.

Hreinsa þarf fræið úr berjunum og þvo aldinkjötið vel af þeim. Fræið rétt hulið með vikri og haft úti á skýldum stað fram á vor.


Kasmírreynir er smávaxið tré sem getur verið ein- eða margstofna. Það blómstrar fölbleikum blómum í júní og þroskar hvít ber. Haustlitirnir eru gulir og bronslitir. Harðgert.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page