Sorbus rosea
Rósareynir
Rósaætt
Rosaceae
Height
2,5 - 5 m
Flower color
bleikur
Flowering
júní
Flower arrangement
-
The age
bleik ber
Leaf color
grænn
Lighting conditions
sól - hálfskuggi
Soil
vel framræstur, frjór
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
harðgerður
Homecoming
Kína
Ættkvíslin Sorbus, reyniviðir, er stór ættkvísl um 100-200 tegunda í rósaætt, Rosaceae með heimkynni á norðurhveli. Ein tegund, reyniviður, er innlend. Sumir grasafræðingar vilja skipta ættkvíslinni upp í fjórar ættkvíslir eftir lögun laufblaða og aldingerð. Eru þá tegundir með fjaðrað lauf áfram í Sorbus en tegundir með heil lauf í ættkvíslinni Aria. Verður þeirri skiptingu ekki fylgt hér.
Fjölgun:
Græðlingar
Sumargræðlingar
Sáning - best sáð að hausti
Fræin spíra best ef þau eru hreinsuð úr berjunum og aldinkjötið þvegið vel af þeim. Fræin rétt hulin með vikri og höfð úti á skýldum stað fram á vor. Fræ spírar við lágt hitastig.
Rósareynir er smávaxið tré eða stórgerður runni sem verður um 2,5 - 5 m á hæð. Blómin eru ljósbleik og hann þroskar bleik ber. Gylltir og rauðir haustlitir.