top of page

Taxus baccata 'Fastigiata Robusta'

Ýviður

Ýviðarætt

Taxaceae

Hæð

óþekkt hér, 8-12 m erlendis

Blómlitur

kk gulbrúnn, kvk grænn

Blómgun

júní

Blómgerð

Aldin

rautt aldin

Lauflitur

dökkgrænn

Birtuskilyrði

sól - skuggi

Jarðvegur

vel framræstur, má vera kalkríkur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þrífst vel

Heimkynni

garðayrki, tegundin vex villt í Evrópu og V-Asíu

Taxus, ýviðir, er lítil ættkvísl í ýviðarætt, Taxaceae. Allar tegundir ættkvíslarinnar eru náskyldar og sumir grasafræðingar vilja skilgreina þær allar sem undirtegundir af ýviði, Taxus baccata. Aðrir skilgreina 9 tegundir. Ýviðir hafa flatar, dökkgrænar nálar sem eru mjúkar viðkomu og þroska köngla sem líkjast opnum rauðum berjum sem umlykja eitt fræ. Þeir eru oftast einkynja (þ.e. plöntur eru annaðhvort kk eða kvk), þó það sé ekki algilt. Allir hlutar eru eitraðir að berjunum undanskildum, þar með talin fræin. Nokkur krabbameinslyf hafa verið þróuð út frá taxane eiturefnunum sem finnast í ýviðartegundum. Viðurinn er sveigjanlegur og var notaður í bogagerð. Ýviðir eru mikið notaðir í formklippingar erlendis. 

Fjölgun:


Sumargræðlingar

'Fastigiata Robusta' er yrki af ývið með súlulaga vöxt og dökkgrænt barr. Uppruni þess var planta sem óx villt í Sviss og var uppgötvuð þar rétt fyrir seinni heimstyrjöldina. Það getur náð 12 m hæð erlendis, en hversu hátt það nær að teygja sig hér á landi á eftir að koma í ljós. Ýviður er hægvaxta og þetta yrki er 20-50 ár að ná fullri stærð erlendis. Ýviður er nokkuð skuggþolinn og getur þrifist hvort sem er í sól eða skugga. Hann þrífst best í vel framræstum jarðvegi, sem má vera kalkríkur, en þarf ekki að vera það. 

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page